
Notaleg herbergi
Rúmgóð herbergi, róandi tónlist og myndavélaeftirlit starfsfólks hjálpa til við að skapa rólega dvöl.
Hlýleg einangrun fyrir gæludýrið þitt á leið til Íslands. Hjá Mósel mætast fagleg umhirða, rólegt umhverfi og virðing fyrir hverju dýri.

Sjáðu aðstöðuna og daglegt líf hjá okkur í myndbandinu frá Mósel.
Dvölin snýst um meira en að bíða. Við leggjum áherslu á ró, örvun og góða umhirðu.

Rúmgóð herbergi, róandi tónlist og myndavélaeftirlit starfsfólks hjálpa til við að skapa rólega dvöl.

Hreyfing og andleg örvun taka mið af þörfum hvers hunds, í samráði við dýralækni stöðvarinnar.

Kettir fá sína eigin aðstöðu og umhirðu á meðan þeir bíða eftir að hitta eigendur sína á ný.
Í Mósel notum við fóður frá Arquivet, sem fæst hjá Pet Pro á Íslandi.

Pet Pro býður upp á fjölbreytt úrval Arquivet-fóðurs. Á petpro.is má skoða fóðurtegundir, innihald og leiðbeiningar fyrir hverja vöru.
Skoða fóður hjá Pet Pro ↗Láttu okkur vita við bókun hvaða fóður gæludýrið fær, hverjar fóðrunarvenjur þess eru og hvort það hefur ofnæmi, óþol eða þarf sérfóður. Hafðu samband fyrir komu til að ræða fyrirkomulag fóðrunar.
Ræða fóðrun við Mósel ↗Komutímabil eru ákveðin í samráði við MAST. Veldu tímabil og hafðu samband til að athuga laust pláss áður en ferðin er bókuð.
Aðstaðan er hönnuð með þægindi dýranna í huga, í rólegu umhverfi með útsýni yfir íslenska sveit.
Meira um Mósel

Við erum í samstarfi við reynslumikinn pet agent í Hollandi sem aðstoðar við undirbúning, skjöl og flug gæludýra til Íslands.
Lesa meira ↗
Frá 1. janúar 2027 verður verð fyrir hunda 260.000 kr. og fyrir ketti 150.000 kr. Skoðaðu tilkynninguna og nýju verðskrána.
Lesa meira ↗
Undirbúðu gæludýrið þitt fyrir einangrun í Mósel með þessum gagnlegu ráðum og leiðbeiningum.
Lesa meira ↗Við tökum á móti dýrunum í gæludýrarými flugvallarins, lesum örmerki og förum yfir fylgiskjöl. Þau fá smá stund til að hreyfa sig, drekka og borða áður en lagt er af stað í um 90 mínútna akstur til Mósels.
Sendu fyrirspurn á moseleinangrun@gmail.com eða notaðu bókunarformið. Mósel staðfestir laust pláss og næstu skref í tölvupósti.
Nei. Komutímabil eru ákveðin fyrirfram í samráði við MAST. Skoðaðu komudagana og staðfestu pláss hjá okkur áður en ferðin er bókuð.
Akstur frá flugvelli, umhirða, fóður og eitt bað og blástur fyrir útskrift eru innifalin. Sérstök meðhöndlun vegna sýkingar er greidd sérstaklega.
Kynntu þér gildandi kröfur á heimasíðu Matvælastofnunar (MAST). Hafðu samband við MAST varðandi leyfi, vottorð og undirbúning innflutnings.
Segðu okkur frá gæludýrinu þínu og fyrirhugaðri komu. Við aðstoðum þig við að finna rétt tímabil.
Bóka plássmoseleinangrun@gmail.com